Ertu kominn með leið á endalausum nauðungaruppfærslum í Windows? Er
tölvan þín orðin of gömul fyrir allt draslið sem Windows er að keyra?
Ertu búinn að fá leið á niðurnjörvuðu valmöguleikum Apple? Linux er
fyrir þig, og alla hina líka.
1. Er Linux ekki bara fyrir sérfræðinga?
Nei. Í dag þá eru margar útgáfur Linux í raun einfaldari fyrir
venjulegt fólk heldur en allavega Windows. Fyrir rúmum áratug, þegar ég
byrjaði að fikta í Linux, þá þurfti ennþá að fikta í allskonar
stillingum. Í dag þarftu ekki að vita hvað „sudo“ þýðir nema að þig
langi að fikta.
2. Er ekki flókið að setja upp nýtt stýrikerfi?
Í dag er uppsetning á Linux oftast alveg fáránlega einföld og
fljótleg. Þar að auki er hægt að prufa margar Linux tegundir á einfaldan
hátt. Stýrikerfið er sett á USB-lykil (t.d. með Windows forritinu
Rufus) og þá er hægt að opna kerfið í tölvunni og sjá hvernig það lítur
út áður en þú setur það upp. Það þarf þó að hafa í hug að stýrikerfið
gæti verið hægvirkara ef það er keyrt af USB-lykli heldur en innbyggðum
disk.
3. Er ekki erfitt að finna og setja upp forrit í Linux?
Nei. Flestar nútímaútgáfur af Linux eru með frekar notendavænar
forritamiðstöðvar þar sem hægt er að setja inn forrit með einum smelli,
svipað og í forritabúðum snjallsíma. Þú þarft líka ekkert að endurræsa.
Stundum þarf fólk að venjast því að nota fleira en eitt forrit í
verkefni í Linux. Windowsforrit eiga það til að bólgna upp af allskonar
fídusum en Linux forrit hafa oft það markmið að gera eitthvað eitt vel.
Þannig myndirðu kannski nota GIMP, Krita og Inkscape í myndvinnslu
frekar en bara Photoshop. Það gæti samt líka verið að þú hafir aldrei
verið að nota nema svo lítinn part af Photoshop þannig að Krita eða Gimp
myndu duga þér.
4. Það eru engir leikir fyrir Linux
Eitt orð: Steam.
5. Fáir nota Linux
Þú notar Linux oft á dag. Vefurinn keyrir meira og minna á Linux,
þetta blogg keyrir á Linux og Facebook keyrir á Linux. Android símar
keyra á Linux. Flest stór kerfi þurfa þann stöðugleika sem Linux bíður
upp á og í dag þá er hægt að fá þennan stöðugleika á notendavænu formi
fyrir einstaklinga.